Crossaint með súkkulaði
25 August , 2013
•
Hver elskar ekki volgt crossaint með góðum kaffi á morgnana. Þetta er í miklu uppáhaldi hjá okkur hjónunum, getur ekki klikkað – volgt crossaint og súkkulaði. Nammi nammi namm………
1 poki frosin crossaint eða smjördeig skorið í þríhyrninga og rúllað upp
1 plata dökkt súkkulaði
1 plata ljóst súkkulaði
Svo er það nú ekki flókið – bara að baka crossaintið samkvæmt leiðbeiningum á pakkingu. Bræða súkkulaðið og berið fram volgt.