salat1

Spínat salat með mozzarella og tómötum

22 November , 2013

Þessi samsetning klikkar ekki. Ég er ekki mikið fyrir að flækja salatið sem ég hef með matnum. Mér finnst best að hafa það einfalt og gott – af hverju að flækja hlutina þegar þeir geta verið einfaldir.

1 poki spínat
1 bakki tómatar
1 poki ferskur mozzarella ostur
Balsamik síróp(nota helst frá Nicolas Vahé)
Ólífuolía
salt og pipar
1 pakki núðlusúpa(nota hana stundum)

Svo er bara að smella þessu saman. Spínat í skál, skera tómatana í báta og rífa mozzarella kúlurnar yfir. Síðan tek ég núðlurnar úr pakkanum og brýt þær niður og rista á pönnu smá tíma, dreifi þeim svo yfir salatið. Að lokum dreifi ég ólífuolíu yfir og balsamik sírópinu og krydda með smá salti og pipar.

Það er líka mjög gott ef maður á ferska basiliku að rífa nokkur blöð yfir salatið og svo er í algjör uppáhaldi hjá mér þessa dagana að nota Balsamic glaze með trufflum frá Nicolas Vahé.

Það er tvennt í þessu – annars vegar að láta tómatana standa á borðinu í allavega sólarhring því þá verða þeir svo rauðir og sætir á bragðið og svo er það að auðvitað getið þið notað furuhnetur eða einhverjar aðra hnetur í salatið í staðinn fyrir núðlurnar. En ég nota stundum hnetur þegar ég ætla að gera extra vel við okkur en þess á milli er algjör snilld að nota núðlurnar því þær eru svo ódýrar og það er svo gott að fá smá svona í salatið sem er smá bit í með.