IMG_3617

Ítalskur hamborgari með basil majónesi

25 August , 2014

Mér finnst það besta sem maður gerir er að gera heimagerða hamborgara. Það er svo auðvelt að leika sér með allt það geggjaða hráefni sem hægt er að blanda saman við nautahakk til að fá smá extra gott bragð í kjötið. Þetta er ein leiðin sem mér finnst alveg ótrúlega góð og slær alltaf í gegn.

500 gr nautahakk
70 gr rifinn parmesan
2 msk fersk basillika smátt söxuð
5 sólþurrkaðir tómatar smátt saxaðir
1 bréf ítölsk salami smátt söxuð
3 hvítlauksrif pressuð
2 msk chillitómatsósa frá Heinz
1 tsk kjúklingakraftur
1 dl brauðrasp
1 egg
salt og pipar eftir smekk
1 kúla ferskur mozzarella ostur
tómatar
salat
hamborgarabrauð eða ciabatta brauð
Basil majónessósa(getið gert ykkar eigin sem ég er með uppskrift af hér fyrir neðan eða keypt tilbúið frá Nicolas Vahé)

Takið parmesanostinn, basillikuna, sólþurrkuðu tómatana, salami og hvítlaukinn og blandið saman í skál. Blandið hakkinu síðan saman við ásamt egginu, tómatsósunni, kraftinum og brauðraspinu. Ég blanda þessu öllu saman með höndunum en ef þið viljið hafa þetta mjög fínt þá er gott að setja þetta allt saman í matvinnsluvél. Kryddið borgarana eftir smekk og grillið á miklum hita á útigrillinu í 5-7 mínútur á hvorri hlið.
Ég nota ciabatta brauð og set smá hvítlauksolíu á þau og grilla í nokkrar mínútur.
Síðan er bara að raða á borgarann eftir sínu eigin höfði, ég setti salat neðst svo tómata og mozzarella sneiðar. Síðan setti ég smá af  piparrótarsósu á hamborgarann og smurði hann með basil majónesinu.

Basil majónes
4 msk majónes
2 tsk grænt pestó
1 lúka fersk basillika smátt söxuð
salt og pipar
Parmesan basil salt frá Nicolas Vahé

Blandið öllu saman í skál og látið standa í ísskápnum í lágmark nokkra klukkutíma, þá verður það miklu betra. Það sama má segja um borgarana en það er best að gera þá deginum áður eða allavega um morguninn áður en á að elda þá.