kjuklinga_lasagna

Mexíkóskt kjúklingalasagna

7 October , 2014

Það er alltaf ljúft að gera lasagna og þess vegna er þetta smá tilbreyting við þetta týpíska lasagna. Þetta finnst mér alltaf alveg rosalega gott að gera og ekki skemmir fyrir ef það er nægur afgangur fyrir daginn eftir.

4 kjúklingabringur
1 gul paprika
1 rauð paprika
1 rauðlaukur
1 hvítlauksrif
1 krukka salsa sósa
1 dós gular baunir
1 dós rjómaostur
1 bréf burritos mix
1 pakki burritos kökur
1 poki rifinn ostur
Mexíkó ostur rifinn
1 dós sýrður rjómi

Hrísgrjón
Brauð
Nachos flögur

Skerið kjúklingabringurnar í bita og kryddið með burritos kryddinu. Steikið á pönnu upp úr olíu þangað til að kjúklingurinn er steiktur í gegn. Takið af pönnunni og geymið í skál. Skerið grænmetið í bita og steikið á pönnunni ásamt hvítlauknum sem er gott að pressa og kryddið með salti og pipar. Þegar grænmetið er orðið mjúkt er það tekið af pönnunni og blandað saman við kjúklinginn í skálinni.
Rjómaosturinn og salsasósan eru sett í pott og blandað saman við vægan hita í nokkrar mínútur eða þangað til að blandan er orðin heit. Hellið þá blöndunni yfir kjúklinginn og grænmetið og blandið vel saman.

Raðið í eldfast mót, tortillaköku, kjúklingablöndunni og smá ost yfir, endurtakið svo aftur tortillakökur, kjúklingablanda og ostur yfir enda svo á tortillaköku og setja mikinn rifinn ost yfir,  Setjið í 200°C heitann ofninn og bakið í 15-20 mínútur.

Sjóðið hrísgrjón og blandið gulum baunum saman við þau og hafið með ásamt sýrða rjómanum. Gott er að hafa hvítlauksbrauð eða annað brauð með þessu og nachos flögur.